Tinna Björk Hjartardóttir hefur hafið störf hjá xRM Software, en hún er einn eigenda fyrirtækisins. Tinna Björk mun sinna sölu- og markaðsmálum auk verkefnastjórnunar í verkefnum fyrir viðskiptavini.

Tinna Björk hóf störf í upplýsingatæknigeiranum árið 2006 en hún starfaði áður hjá Microsoft Íslandi. Hún hóf störf þar árið 2009, fyrst sem verkefnstjóri en síðar sem viðskiptastjóri stærri fyrirtækja. Þar áður starfaði hún hjá Applicon sem ráðgjafi og vörustjóri í Microsoft lausnum og á undan því sem markaðsstjóri Marel í Bretlandi.

Tinna Björk útskrifaðist með B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005 og hefur víðtæka reynslu af innleiðingum Microsoft Dynamics CRM og SharePoint hugbúnaðarlausna, verkefnastjórnun, ferla- og þarfagreiningu og markaðs- & rekstrarmálum.