Tinna Jóhannsdóttir
Tinna Jóhannsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Tinna Jóhannsdóttir hefur verið ráðin til að gegna stöðu markaðsstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.  Hún tekur við af Árdísi Ármannsdóttur sem ráðin hefur verið sem framkvæmdastjóri Skema.

Í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð kemur fram að Tinna hefur áralanga reynslu af fyrirtækjarekstri, markaðsmálum og mannauðsstjórnun auk víðtækrar þekkingar á nýsköpunar- og stuðningsumhverfinu. Einnig þekkir Tinna vel til starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands en hún starfaði um árabil sem upplýsingafulltrúi Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Tinna er með gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti frá Háskólanum á Bifröst og diplomagráðu í mannauðsstjórnun frá Endurmenntun Háskóla Íslands.