© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Breski tískuvöruframleiðandinn Burberry tilkynnti í morgun uppgjör sitt fyrir fyrstu sex mánuði reikningsársins, sem lauk 30. september.

Hagnaðurinn nam 158 milljónum punda, rúmum 28 milljörðum króna, Jókst hagnaður félagsins um 23%.

Burberry hyggst auka búðarpláss um 15%, aðallega í Kína og öðrum nýmarkaðslöndum. Búðum verður fjölgað um 8-10 í Kína, Suður Ameríku og París. Ef efnahagsástandið vesnar mun félagið endurskoða útvíkkun starfsseminnar.

Hlutabréf Burberry hafa þrátt fyrir gott uppgjör lækkað um 5,7% í kauphöllinni í Lundúnum.

Burberry
Burberry