Félagið TF-KEF hefur fest kaup á þremur fasteignum sem áður voru í eigu bandaríska hersins á gamla varnarliðssvæðinu á Suðurnesjum. Félagið kaupir eignirnar af Kadeco, rekstrarfélagi svæðisins. Félagið TF-KEF er í eigu Títan fasteigna, systurfélags Títan fjárfestingafélags, sem er í eigu Skúla Mogensen.

Um er að ræða þrjár blokkir sem eru um það bil 6.500 fermetrar en tvær þeirra verða nýttar undir hótelrekstur. Sú þriðja verður í langtímaleigu og er nú verið að standsetja þar 24 íbúðir. Í hinum tveimur fasteignunum verður rekið  lággjalda flughótel með um 100 herbergjum og hótelíbúðum. Fyrirhuguð opnun er í júlí á þessu ári.

Lögð verður áhersla á gesti sem staldra stutt við í svokölluðum „stopover“ flugum eða þá sem kjósa að enda ferðalagið sitt nálægt Keflavíkurflugvelli til að ná morgunflugi næsta dag.