Frumkvöðlakeppnin Gulleggið er nú á lokametrunum, en keppninni bárust 251 hugmynd og úr þeim voru gerðar 100 viðskiptaáætlanir. Valnefnd hefur nú valið tíu hugmyndir af þessum hundrað sem standa eftir í keppninni um Gulleggið.

Teymin munu kynna hugmyndirnar frammi fyrir dómnefnd laugardaginn 7. mars næstkomandi og síðar þann dag verður ljóst hvaða hugmynd hlýtur Gulleggið í ár. Hugmyndirnar eru eftirfarandi:

  • Appsláttur - Appsláttur sem minnir þig á afsláttinn.
  • e1 - Deilihagkerfi hleðslustöðva fyrir rafbíla.
  • Future Habits - Smáforrit sem kennir krökkum á aldrinum þriggja til sjö ára næringarfræði með myndrænum hætti.
  • Jungle Bar - Orkustykki sem nýtir prótein úr skordýrum.
  • Mekano ehf. - Samsett fjöltengi fyrir allar gerðir raftækja og USB lágspennutækja.
  • Námsefnisbankinn - Safnar saman verkefnum útbúin af kennurum sem einfalt er að sækja og leggja fyrir.
  • Rofar Technology ehf. - Endurhannar staðalinn fyrir stýringu ljósa og heimilistækja eins og Apple endurhannaði snjallsímann.
  • Sparta - Veflausn sem aðstoðar fólk að finna, halda utan um og skrá tölfræði tengda íþróttaviðburðum.
  • Strimillinn - Miðlægt hugbúnaðarkerfi sem ætlað er að bæta aðgengi að upplýsingum um verðlag á dagvöru á Íslandi.
  • Verðgreinir - Einfalt kostnaðarbókhaldskerfi, hannað fyrir snjalltæki, ætlað fyrir sjálfstætt starfandi verktaka.

Þátttakendur hafa frá því í lok janúar setið vinnusmiðjur og námskeið þar sem þeir hafa unnið hugmyndir sínar áfram og gert úr þeim raunhæfar og vandaðar áætlanir.

Gulleggið fór fyrst fram árið 2008 en síðan þá hafa alls 1954 hugmyndir borist í keppnina. Fjölmörg starfandi fyrirtæki hafa stigið sín fyrstu skref í keppninni og má þar m.a. nefna Meniga, Cooori, Betri svefn, Karolina Fund, Sigurást, Pink Iceland, Controlant o.fl. Gulleggið er haldið af Klak Innovit nýsköpunar og frumkvöðlasetri en verkefnisstjórn keppninnar skipa 14 sjálfboðaliðar frá samstarfsháskólunum HR, HÍ, Bifröst og LHÍ.

Verðlaunaafhending Gulleggsins er opin almenningi en hún fer fram á Háskólatorgi í Háskóla Íslands laugardaginn 7. mars nk. og hefst kl. 16:00.