Tíu viðskiptahugmyndir hafa verið valdar til þátttöku í tíu vikna viðskiptahraðal sem hefst þann 16. febrúar n.k. Verkefnið er sérsniðið að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu og er ætlað að veita þeim faglega undirstöðu og hraða ferlinu sem þau fara í gegnum frá því að hugmynd fæðist þar til viðskipti taka að blómstra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandic Startups.

Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall fyrir nýjar hugmyndir og fyrirtæki á sviði ferðaþjónustu. Hraðallinn hefst þann 16. febrúar næstkomandi og er nú haldið í annað sinn. Um er að ræða samstarfsverkefni Icelandic Startups, Bláa lónsins, Íslandsbanka, Isavia, Vodafone og Íslenska ferðaklasans.

Í tíu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan ferðaþjónustunnar og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.

Eftirtaldar tíu viðskiptahugmyndir taka þátt í Startup Tourism árið 2017;

1. Aurora Arctic Travel
Listræn norðurljósasýning innandyra

2. Deaf Iceland
Sérsniðin þjónusta og afþreying fyrir ferðamenn á táknmáli

3. Ferðasjáin
Leitarvél sem finnur draumaferðina út frá óskum og sérþörfum

4. Hælið, safn tilfinninganna
Setur um sögu berklanna á Kristnesi í Eyjafirði

5. IceYoga
Jógaævintýri á ferðalagi um landið

6. Laugarvatnshellar
Lifandi innsýn í manngerða hella sem eitt sinn voru heimili

7. Regnbogasafnið í Reykjavík
Einstök upplifun ljóss og lita á mærum myndlistar og vísinda

8. Sigló Ski Lodge
Áfangastaður og miðstöð fyrir náttúruunnendur á Norðurlandi

9. Sólvangur Horse Center
Einstök og fjölbreytt upplifun á sönnum íslenskum hestabúgarði

10. SWAGL
Smáforrit sem veitir aðgang að persónulegri þjónustu sem auðveldar verslun í ókunnu landi