Fasteignaþróunarfélagið Smárabyggð ehf., sem vinnur að því að reisa byggð sunnan við Smáralind í Kópavogi undir nafninu 201 Smári, hagnaðist um 568 milljónir á síðasta ári og 524 milljónir árið 2019.

Félagið seldi íbúðir fyrir tæplega 5,3 milljarða króna á árinu 2020 líkt og árið 2019 og nemur heildarsala íbúða á svæðinu því yfir 10 milljörðum króna. Byggingarkostnaður seldra eigna var nær 4,6 milljarðar króna og lækkar um 68 milljónir á milli ára. Rekstrarhagnaður var 711 milljónir en var 652 milljónir fyrir ári.

Í ársreikningi félagsins kemur fram að samþykki sé fyrir uppbyggingu 647 íbúða á lóðum félagsins. Í lok árs 2020 var byggingu 216 íbúða lokið og þar af voru 209 seldar. 84 íbúðir til viðbótar voru komnar í byggingu og undirbúningur og hönnun hafin á 201 íbúð. Framkvæmdir hófust árið 2017 og er stefnt að því að þeim ljúki árið 2023.

Bókfærðar eignir Smárabyggðar í árslok námu tæplega 6,1 milljarði króna en voru 8,2 milljarðar króna fyrir ári. Skuldir lækkuðu úr 7,5 milljörðum í 4,8 milljarða króna en félagið greiddi niður lán upp á 2,8 milljarða króna á árinu. Þá hækkaði eigið fé hækkaði úr 679 milljónum króna 1,25 milljarða króna.

Sjá einnig: Reginn kaupir hlut GAMMA í Smárabyggð

Móðurfélag Smárabyggðar er Grunnur I ehf., en þar eru stærstu hluthafarnir Varða Capital og Klasi með tæplega 40% hlut hvort um sig. Varða Capital er í eigu Gríms Alfreðs Garðarssonar, Jónasar Hagan og Edward Mac Gillivray Schmidt. Klasi er að mestu í eigu Tómasar Kristjánssonar, Steinunnar Jónsdóttur og Finns Reyrs Stefánssonar.

Þá keypti Reginn ríflega 20% hlut sjóðsins GAMMA:201 í verkefninu fyrr á þessu ári en Reginn er einnig eigandi Smáralindar.