Jón Björnsson, fyrrverandi forstjóri Festi, var tekjuhæsti forstjóri landsins í fyrra og námu tekjur hans að jafnaði 28,4 milljónum króna á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra. Jón hætti sem forstjóri fyrirtækisins síðasta haust en rekstrarfélög þess eru N1, Krónan, Elko og Bakkinn.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur tæplega ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.
Þá námu tekjur Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, að jafnaði 27,5 milljónum króna á mánuði. Þess ber að geta að stærsti hluti tekna Kára á síðasta ári var einskiptisgreiðsla vegna séreignarsparnaðar hjá lífeyrissjóði. Mánaðarlaun hans hjá Íslenskri erfðagreiningu námu um 7,5 milljónum króna á síðasta ári og breyttust ekki á milli ára.
Næstir koma Vilhelm Róbert Wessman , forstjóri Alvogen , með 27,4 milljónir og Tómas Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri hjá Alcoa í Bandaríkjunum, sem var með 14,7 milljónir.
Tíu tekjuhæstu forstjórarnir árið 2018
- Jón Björnsson, fv. forstjóri Festi 28,4 milljónir
- Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar 27,5 milljónir
- Vilhelm Róbert Wessman , forstjóri Alvogen 27,4 milljónir
- Tómas Már Sigurðsson, fv. forstjóri hjá Alcoa USA 14,7 milljónir
- Valur Ragnarsson, fv. forstjóri Medis 10.4 milljónir
- Grímur Karl Sæmundsen , forstjóri Bláa Lónsins 10,3 milljónir
- Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels 8.9, milljónir
- Jón Þorgrímur Stefáns., forstjóri NetApp 8.2 milljónir
- Carlos Cruz , fv. forstjóri Coca Cola á Íslandi 8.1 milljón
- Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi 6.2 milljónir
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .