Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri Marel, er með hæstu tekjurnar á lista yfir næstráðendur í Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Miðað við greitt útsvar námu mánaðarlegar tekjur hennar ríflega 26,8 milljónum króna á síðasta ári.
Í öðru sæti á listanum er Viðar Erlingsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri nýsköpunar hjá Marel, með tæplega 22,9 milljónir. Viðar tók við stjórn upplýsingatæknisviðs Össurar í janúar á þessu ári. Árni Sigurðsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga hjá Marel, er í þriðja sæti listans með ríflega 18,8 milljónir.
10 tekjuhæstu næstráðendur 2020:
- Linda Jónsdóttir, fjármálastj. Marel - 26.829
- Viðar Erlingsson, fv .frkvstj. nýsköpunar Marel - 22.866
- Árni Sigurðsson, frkvstj. hjá Marel 18.825
- Pétur Guðjónsson, yfirm. alþjóðl. sölu og þjón. Marel - 18.215
- Davíð Freyr Oddsson, yfirm. mannauðsmála Marel - 16.895
- Egill Jónsson, frvkstj. frlsv. Össur - 10.854
- Sveinn Logi Sölvason, fjármstj. Össurar - 10.578
- Heimir Þorsteinsson, yfirm. fjármsv. Actavis á Ísl. - 5.480
- Rakel Óttarsdóttir, frkvstj. upplýsingatækni Alvotech - 4.947
- Halldór Bjarkar Lúðvígsson, frkvstj. fjármálasviðs Heklu - 4.755
(Mánaðartekjur í þúsundum króna)
Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2020 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og öðrum aukastörfum og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2019, sem greiddur var árið 2020. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Hafa verður í huga að inni í tekjunum getur líka verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak
hér
.