Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur í Háteigskirkju, er efst á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu presta á síðasta ári. Hún fékk greitt að jafnaði 2,2 milljónir króna á mánuði miðað við greitt útsvar.
Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, er í öðru sæti á listanum með ríflega 1,6 milljónir á mánuði. Hún var einnig í öðru sæti í síðustu útgáfu Tekjublaðsins fyrir árið 2018.
Karl Valgarður Matthíasson, sóknarprestur í Grafarholti, vermir þriðja sætið með nærri 1,6 milljónir að jafnaði á mánuði.
Tekjur tíu hæstu á mánuði að jafnaði í þúsundum króna:
- Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur Háteigskirkju - 2.163
- Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands - 1.619
- Karl Valgarður Matthíasson, sóknarprestur Grafarholti - 1.592
- Jón Ragnarsson, prestur Akureyri - 1.520
- Sigurður Arnarson, Kársnesprestakalli - 1.498
- Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur Landspítala - 1.476
- Fjölnir Ásbjörnsson, sóknarprestur Holti, Önundarfirði - 1.473
- Hjörtur Magni Jóhannsson, Fríkirkjuprestur Reykjavík - 1.437
- Gísli Jónasson, próf. Breiðholtsprestakalli - 1.432
- Þórhildur Ólafs, prófastur Hafnarfirði - 1.427
Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2020 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og öðrum aukastörfum og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2019, sem greiddur var árið 2020. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Hafa verður í huga að inni í tekjunum getur líka verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .