Nýjum tíu þúsund króna seðli sem settur var í umferð 24. október síðastliðinn hefur verið tekið vel. Þetta kemur fram á vef Seðlabankans í dag, gamlársdag.

„Nú eru um 550 þúsund tíu þúsund króna seðlar í umferð utan Seðlabanka Íslands eða um 5,5 milljarðar króna," segir á vefnum.  "Hlutdeild seðilsins er um 12,5 prósent af andvirði seðla í umferð í lok árs."

Í heildina eru um 44,2 milljarðar króna í seðlum í umferð. Þegar mynt er talin með eru alls um 47 milljarðar króna af reiðufé í umferð utan Seðlabanka Íslands og er aukningin um 1,9 milljarðar króna á árinu eða um 4,2%.

Á vef Seðlabankans segir að að tilgangurinn með útgáfu tíu þúsund króna seðilsins hafi verið  að gera greiðslumiðlun á Íslandi liprari og hagkvæmari, meðal annars með því að fækka seðlum í umferð.

„Það hefur tekist því fimm þúsund króna seðlum hefur fækkað nokkuð," segir á vef Seðlabankans.