Um tíu óskuldbindandi tilboð bárust í fyrirtækið BLIH ehf., móðurfélag bílaumboðanna Ingvars Helgasonar og Bifreiða og landbúnaðarvéla.

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri Miðengis, eins eigenda BLIH, segir að fyrsta fasa í söluferlinu sé nú að ljúka.

„Við erum núna að hitta nokkra þeirra sem skiluðu inn tilboðum áður en ákveðið hve mörgum verður boðið að halda áfram í ferlinu.“ Ekki er ólíklegt að hart verði barist um fyrirtækið, enda er það með umboð fyrir nokkrar vinsælar bílategundir, þar á meðal Subaru, Nissan og Hyundai. Ekkert hefur komið fram enn um það hverjir hafa skilað inn tilboðum í fyrirtækið.