Ýmsar framsæknar og djarfar nýjungar í landbúnaði og sjávarútvegi hafa verið valdar til þátttöku í nýjum viðskiptahraðli að því er segir í fréttatilkynningu. Eru snyrtivörur úr gulrótum og kolsýrt drykkjarvatn úr sjó, meðal sjálfbærra hugmynda í viðskiptahraðlinum sem er sérstaklega ætlaður fyrir landbúnað og sjávarútveg.
Nú er orðið ljóst hvaða tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í Til sjávar og sveita, fyrsta viðskiptahraðlinum á Íslandi sem einblínir á nýjar lausnir og sjálfbæra verðmætasköpun í landbúnaði og sjávarútvegi.
Markmiðið með hraðlinum er að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrirtækja í þessum grunnatvinnugreinum Íslendinga. Verkefninu er þannig ætlað að veita þátttakendum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd fæðist þar til viðskipti taka að blómstra.
70 umsóknir þegar haldið í fyrsta sinn
Til sjávar og sveita er haldinn í fyrsta skipti í ár en yfir sjötíu umsóknir bárust í hraðalinn. Af þessum hópi voru tuttugu umsækjendur teknir í viðtal og hafa tíu teymi nú verið valin til þátttöku úr þessum breiða hópi umsækjenda.
Þrjú fyrirtæki vinna að tæknilausnum en hin sjö eru afurðatengd og koma bæði úr landbúnaði og sjávarútvegi. Í níu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna tækifæri til að þróa hugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan landbúnaðar og sjávarútvegs og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.
Icelandic Startups hefur í samstarfi við Íslenska sjávarklasann komið á fót til Sjávar og sveita með fulltingi Ikea á Íslandi, Matarauðs Íslands, Landbúnaðarklasans og HB Granda.
Í gegnum þessa bakhjarla fá fyrirtækin aðgang að tengslaneti og fagþekkingu sem á engan sinn líka á Íslandi. Ætlunin er að hraðallinn varpi ljósi á þau tækifæri sem felast í sjálfbærri nýtingu auðlinda á Íslandi.
Eftirtalin tíu fyrirtæki taka þátt í Til sjávar og sveita 2019:
- ArcanaBio
Ný háhraða tækni sem útbýr DNA greiningarpróf, allt frá matvælaiðnaði yfir í líftækni
- Álfur Beer
Bruggar bjór úr kartöfluhýði sem færi annars til spillis
- Beauty by Iceland
Snyrtivörur úr gulrótum og rófum sem færu annars til spillis
- Feed The viking
Sprotafyrirtæki sem starfar með það markmið að auka virði íslenskra matvæla með nýsköpun og öflugri markaðssetningu
- Ljótu kartöflurnar
Framleiðsla á kartöfluflögum úr annars flokks íslensku hráefni sem annars yrði fargað
- Stafræn veiðibók
Færa veiðibókina af pappírnum upp í skýin
- Pure Natura
Framleiðir hágæða íslensk fæðuunnin bætiefni úr lambainnmat og íslenskum jurtum
- Tracio
Næsta kynslóð rekjanleika og upplýsingakerfa sem á nýjan hátt eykur skilvirkni og traust í virðiskeðju matvæla.
- Urtasjór
Framleiðsla á jurtabragðbættu og kolsýrðu, steinefnaríku drykkjarvatni unnið úr sjó
- Æðarkollur
Fullvinnsla æðardúns á Íslandi