Samsett hlutfall VÍS var 112,0% í nóvember miðað við 104,6% í nóvember í fyrra. Samsett hlutfall það sem af er ári er 99,6% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 98,6%. Samsett hlutfall segir til um hreinan tjónakostnað og rekstrarkostnað sem hlutfall af iðgjöldum.

Nafnhækkun fjárfestingaeigna VÍS var 1,6% í nóvember en nafnhækkun frá áramótum er 7,5%. VÍS greiddi viðskiptavinum sínum tæplega 1,6 milljarð króna í tjónabætur í nóvember og hefur greitt viðskiptavinum sínum um 14,7 milljarða í tjónabætur það sem af er ári.

„Líkt og í október sjáum við mikinn tjónaþunga þvert á greinar, sérstaklega í húseigna- ökutækja og slysatryggingum. Á móti kemur er afkoma af fjárfestingum vel ásættanleg og horfur til þess að afkoma af þeim verði yfir væntingum fyrir árið. Af þeim sökum höfum við enn væntingar um að ná þeim afkomumarkmiðum sem fram komu í afkomuspá sem við gáfum frá okkur samhliða uppgjöri þriðja ársfjórðungs," segir Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS í tilkynningu.