Tæknival hf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta vegna langvarandi rekstrarerfiðleika og erfiðrar skuldastöðu, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Skiptabeiðnin var gerð á grundvelli 2. mgr. 64. gr. laga um gjaldþrotaskipti, en ljóst er að félagið getur ekki staðið í fullum skilum við lánardrottna þegar kröfur falla í gjalddaga og ljóst er að greiðsluörðugleikar munu ekki líða hjá innan skamms.

Skiptastjóri hefur verið skipaður Sigurmar K. Albertsson hrl.