Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi rétt í þessu að það væri óeðlilegt að hann segði fjármálaráðherra fyrir verkum úr ræðustól Alþingis, um það hvernig hann ætti að úrskurða í kæru vegna evruuppgjörs. Kom þetta fram í svari Geirs við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna.
Tilefni fyrirspurnar Steingríms eru meðal annars ummæli Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokks og menntamálaráðherra, á opnum fundi sjálfstæðismanna í Valhöll um helgina. Þar sagði Þorgerður: "Þess vegna er það mín skoðun að við eigum, meðal annars líka til þess aðeins að sljákka í þessu evrutali, að við eigum að leyfa þeim fyrirtækjum sem kjósa svo að gera upp í þeim gjaldmiðlum sem að þeir óska eftir."
Geir kvaðst í svari sínu við fyrirspurn Steingríms fullvissa hann um að formaður Sjálfstæðisflokksins, varaformaður hans og flokkurinn allur gengu í takt í þessu máli. Hann rakti jafnframt að ársreikningaskrá hefði, vegna umsóknar Kaupþings, komist að þeirri niðurstöðu að fjármálafyrirtæki gætu gert upp í evrum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. "Það liggur fyrir að Seðlabankinn hefur aðra skoðun á því en ársreikningaskrá."
Nú væri fjármálaráðherra hins vegar með málið til umfjöllunar. Hann myndi úrskurða um það, vonandi fyrr en síðar. Á hinn bóginn væri óeðlilegt að forsætisráðherra segði fjármálaráðherra fyrir verkum í þeim efnum.
Steingrímur J. spurði þá hvort það væri við hæfi að varaformaður Sjálfstæðisflokksins segði fjármálaráðherra fyrir verkum ef það væri ekki við hæfi að forsætisráðherra gerði það. "Var kannski verið að senda fjármálaráðherra leiðsögn í gegnum ræðustólinn í Valhöll?," spurði hann. Engin svör fékk hann hins vegar við þeirri spurningu.