Tryggingamiðstöðin (TM) og Fákur undirrituðu í dag samstarfssamning er snýr að Gæðingamóti Fáks.
Mótið mun samkvæmt samningnum nefnast TM Gæðingamót Fáks og verður haldið dagana 29. maí til 1. júní næstkomandi, á félagssvæði Fáks í Víðidal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá TM.
Mótið er úrtökumót fyrir Landsmót hestamanna 2008 og felur samningurinn ennfremur í sér að TM verði aðalstyrktaraðili þeirra félagsmanna Fáks sem fara á Landsmótið.
„Samstarfssamningur þessi er liður í að kynna enn frekar þær breytingar sem gerðar hafa verið á hestatryggingum TM en þær eru nú einfaldari og víðtækari en þær tryggingar sem boðist hafa hestaeigendum almennt hér á landi,“ segir í tilkynningunni.