TM hefur sett fram skuldbindandi kauptilboð í alla hluti í Lykli fjármögnun hf., sem er í eigu Klakka, að því er fram kemur í tilkynningu frá TM.

Fjárfestum stóð til boða að skila inn óskuldbindandi tilboðum í allt hlutafé félagsins þann 6. apríl 2018. Í framhaldinu var tilteknum fjárfestum boðið að taka þátt í öðrum hluta söluferlisins og skilafrestur til að gera skuldbindandi tilboð rann út í dag, í dag, föstudaginn 22. júní, klukkan 15:00.

Það er nú Klakka að taka ákvörðun um hvaða tilboði ef einhverju verður tekið.

Lykill fjármögnun er fjármálafyrirtæki sem býður upp fjármögnunarleiðir við kaup og rekstur fasteigna og lausafjármuna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og aðra rekstraraðila.

Tilboð TM er háð ýmsum fyrirvörum, svo sem um áreiðanleikakönnun og niðurstöðu hennar, samþykki Fjármálaeftirlitsins um að TM megi fara með virkan eignarhlut í hinu selda félagi og að Samkeppniseftirlitið samþykki hið nýja eignarhald, samkvæmt tilkynningu frá TM. Beringer Finance ehf. hefur annast söluferlið fyrir hönd seljanda.