Norska tryggingarfyrirtækið NEMI Forsikring ASA tilkynnti í dag að Tryggingarmiðstöðin hafi lokið við áreiðanleikakönnun á fyrirtækinu með fullnægjandi niðurstöðum samkvæmt skilmálum kauptilboðsins, segir í frétt Dow Jones.

TM mun eignast 74,5% af hlutafé NEMI samkvæmt samningnum, en TM mun gera kröfu í afgang hlutafés fyrirtækisins, segir NEMI.