Tryggingamiðstöðin (TM) hefur ákveðið að hætta við áform um að gera kauptilboð í norska tryggingafélagið Nemi forsikring ASA, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Félagið segir ástæðuna vera að ekki fékkst stuðningur stjórnar Nemi við fyrirhuguð kaup.

Eftir lokun kauphallar í Noregi föstudaginn 31. mars lýsti TM formlega við stjórn Nemi vilja til að gera kauptilboð í allt hlutafé fyrirtækisins. TM á 9,77% hlut í Nemi.

Í bréfi til stjórnar Nemi var því lýst á hvaða forsendum TM væri reiðubúið að gera öðrum hluthöfum í fyrirtækisins formlegt tilboð.

?Í stuttu máli að kaupin yrðu vinsamleg og því yrðu a.m.k. tvö skilyrði að vera uppfyllt; meirihluti hluthafa yrði að samþykkja kaupin og stjórnin yrði að styðja þau. Stuðningur við fyrra skilyrðið var auðfenginn en komið hefur á óvart að ekki fékkst stuðningur stjórnar Nemi við fyrirhuguð kaup þrátt fyrir fyrrnefndan vilja hluthafa. Afleiðingin af þessu er sú að TM hefur ekki látið í ljós nein áform um að gera tilboð," segir í tilkynningu til kauphallarinnar.