Gengið hefur verið frá samningi um sölu á Nemi, dótturfélags Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í Noregi, til norska tryggingafélagsins Protector Forsikring ASA.

Þetta kemur fram í tilkynningu TM til Kauphallarinnar en samningurinn er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og samþykki opinberra aðila, þ.m.t. norska fjármálaeftirlitsins.