Tryggingamiðstöðin hefur gert samning við norska tryggingafyrirtækið Møretrygd um vátryggingasamstarf á sviði frum- og endurtrygginga eins og segir í fréttatilkynningu.

Samningurinn, sem er nýmæli í íslenskum tryggingaviðskiptum, nær til vátrygginga vegna hátt á áttunda hundrað báta og skipa og er því um umtalsverð viðskipti að ræða. Hann er til þriggja ára.

Samningurinn við Møretrygd er samstarfsverkefni TM og Nemi og markar ákveðin tímamót sem fyrsti samningur sem þessi félög koma saman að. Ráðgert er að félögin muni vinna áfram saman að fleiri verkefnum á erlendum vettvangi en eftir að TM eignaðist Nemi er orðið auðveldara fyrir félagið að bjóða fyrirtækjum á Norðurlöndum þjónustu.

Bátaábyrgðarfélagið Møretrygd er í Álasundi á vesturströnd Noregs, fyrir norðan Bergen. Félagið er stórt á sínu sviði á norskan mælikvarða og hefur sterka stöðu á sínu markaðssvæði. Møretrygd er gagnkvæmt tryggingafélag á sviði skipatrygginga en það þýðir að viðskiptavinirnir eru meðlimir í félaginu og eiga það og stjórna því. Møretrygd tryggir um það bil 760 fley fyrir vátryggingafjárhæðir sem nema tæpum 70 milljörðum. Árleg iðgjöld nema tæpum 600 milljónum og eigið fé er rúmlega 1,7 milljarður. Møretrygd, sem hefur orðið til við röð samruna bátaábyrgðarfélaga gegnum árin, er meðal elstu tryggingafélaga í Noregi. Tvö elstu félögin sem að því standa voru stofnuð á síðustu áratugum nítjándu aldar segir í tilkynningunni.