TM Software og Icelandair hafa endurnýjað samstarfssamning sinn um þróun og þjónustu  á upplýsingatæknikerfum hjá Icelandair Group.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá TM Software en þar segir að Icelandair og TM Software hafi átt farsælt samstarf um árabil.

Í tilkynningunni kemur fram að starfsmenn TM Software endurhönnuðu nýlega vefsvæði Icelandair sem nú eru flest komin á eitt og sama veftréð sem auðveldar allt utanumhald og dregur verulega úr kostnaði fyrirtækisins.

Eins hafa sérfræðingar TM Software hannað farsímavef fyrir Icelandair þar sem farþegar geta fylgst með komum og brottförum ásamt því að nálgast ýmsar aðrar mikilvægar upplýsingar.  Auk þess hefur TM Software séð um viðhald, þróun og samþáttum ýmissa innri kerfa Icelandair.

„Icelandair hefur alltaf lagt mikinn metnað í veflausnir sínar og við hlökkum til að takast á við framtíðarverkefni með þeim“, segir Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri TM Software í tilkynningunni.

Þá kemur fram að stefna Icelandair er að veita viðskiptavinum sínum gæðaþjónustu og liður í því er að halda úti framúrskarandi vefsvæði sem stór hluti viðskipta fyrirtækisins fer í gegnum.

„Það er því sérstaklega ánægjulegt að vefsvæði Icelandair hlaut nýverið Íslensku Vefverðlaunin 2008 sem besti sölu- og þjónustuvefurinn,“ segir í tilkynningunni.