Tobba Marínósdóttir hefur sagt starfi sínu sem ritstjóri DV lausu til að einbeita sér alfarið að matvælarekstri.

Tobba hefur gegnt starfinu hjá DV frá því síðasta vor, en samhliða því hefur hún síðustu ár framleitt og selt granóla.

„Nú er svo komið að ég get ekki lengur sinnt því aðeins á kvöldin. Ég mun hella mér alfarið út í rekstur á Náttúrulega Gott og Granólabarnum sem opnar vonandi í næsta mánuði,“ er haft eftir henni í frétt Vísis um málið .