Hópur fólks, sem efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit hjá á þriðjudag vegna gruns um skattsvik í tengslum við erlend greiðslukort, er grunaður um að hafa tekið út af kortunum vel á annað hundrað milljónir króna á árunum 2007 til 2008.
Greiðslukortin eru öll útgefin í Lúxemborg og allir eigendur þeirra voru með bankareikninga þar í landi.
Þær tekjur sem notaðar voru til að greiða af kortunum voru hins vegar aldrei taldar fram hérlendis og í því felast hin meintu brot. Alls er um 14 mál að ræða og eru 19 manns grunaðir í þeim.
Heimildir Viðskiptablaðsins herma að hluti hópsins sé fólk sem er þekkt í viðskiptaheiminum, þó að það sé ekki úr hópi hinna svokölluðu útrásarvíkinga. Fólkið var boðað í skýrslutökur í gærmorgun.