Um fimmtíu manna lið sem starfa mun við tökur á bresku spennuþáttunum Fortitude lenti á Egilsstöðum klukkan eitt í dag með leiguflugi frá Bretlandi. Þetta kemur fram á vef Austurfréttar. Meðal leikara í þáttunum eru Sofie Gråböl, sem þekkt er fyrir leik sinn í Forbrydelsen, Michael Gambon, sem lék Dumbledore prófessor í Harry Potter, og Stanley Tucci.

Vél breska flugfélagsins Monarch kom frá Bretlandi og með henni voru um fimmtíu farþegar og tugir tonna af búnaði, eftir því sem Austurfrétt greinir frá. Tökur munu næstu vikur fara fram á spennuþáttunum Fortitude á Reyðarfirði, Eskifirði og flugvellinum á Egilsstöðum. Heimildir Austurfréttar herma að frægu leikararnir í myndinni hafi ekki verið um borð í vélinni sem lenti fyrir austan.