Upptökur á þáttunum Fortitude munu hefjast í janúar eða febrúar á næsta ári og standa yfir í níu til tíu vikur. Eins og VB.is greindi frá í gær fara þrjár stórstjörnur, þau Stanley Tucci, Michael Gambon og Sofie Grabol með hlutverk í þáttunum.  Gambon er þekktastur fyrir það að leika Dumbledore prófessor í Harry Potter myndunum og Grabol lék aðahlutverkið í The Killing.

Samkvæmt heimildum VB.is munu upptökur fara fram á Austurlandi. Sömu heimildir herma að það sé kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Pegasus sem sér um að þjónusta framleiðendur þáttanna við tökur hér á landi. Pegasus hefur þjónustað framleiðendur þáttanna Game of Thrones við tökur hér á landi.