Veitingastaðurinn Tokyo Sushi hefur innleitt Toshiba kassakerfislausn frá Nýherja á fjórum veitingastöðum sínum. Tokyo Sushi er með fyrstu veitingastöðum hér á landi til þess að taka í notkun lausn frá Toshiba eftir að Toshiba Global Commerce Solutions keypti afgreiðslulausnir IBM, að því er fram kemur í tilkynningu frá Nýherja.

Toshiba GCS er nú eitt stærsta fyrirtækið í sínum geira í lausnum fyrir smásölumarkað.

Toshiba GCS veitti Nýherja viðurkenningu á dögunum fyrir einstakan  árangur í sölu og innleiðingu kassakerfa á smásölumarkaði, en Nýherji var á meðal fyrstu samstarfsaðila Toshiba til þess að innleiða snjalllausnir fyrir smásölu.