Tólf eru látnir og fjórir særðir eftir skotárás á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í París í morgun. Meðal hinna látnu eru tveir lögreglumenn, en árásarmennirnir hafa ekki fundist ennþá.

Myndband náðist af því þegar tveir árásarmannanna fóru út úr bíl sínum vopnaðir rifflum og skutu lögreglumann í höfuðið af stuttu færi.

Varað er við efni myndbandsins.