Vísitala neysluverðs í mars 2007 er 267,1 stig og lækkaði um 0,34% frá fyrra mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 243,2 stig, lækkaði um 0,86% frá febrúar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári (2,9% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Hinn 1. mars lækkaði virðisaukaskattur af matvælum og fleiri vörum og þjónustu. Á þær vörur sem áður lagðist 14% skattur leggst nú 7% og á það við um flestar matvörur, hitunarkostnað, afnotagjöld, bækur o.fl. Virðisaukaskattur af sætindum og drykkjarvörum öðrum um áfengi og veitingum lækkaði úr 24,5% í 7%. Þá voru vörugjöld afnumin af flestum matvælum og tollar á kjöt lækkaðir.

Frá febrúar til mars lækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 7,4% (vísitöluáhrif -1,01%) og hefur lækkun virðisaukaskatts á matvælum því skilað sér vel, segir Hagstofan.

Áhrif af lækkun vörugjalda og tolla eru hins vegar ekki komin fram. Verð á veitingum lækkaði um 3,2% (-0,15%) en hefði átt að lækka um 8,8% ef lækkun virðisaukaskatts hefði skilað sér að fullu og ekki komið til annarra verðbreytinga.

Útsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 12,3% (0,49%). Þá jókst kostnaður vegna eigin húsnæðis um 1,3% (0,24%), þar af voru 0,17% áhrif af hækkun markaðsverðs, 0,06% af hækkun vaxta.

Hagstofan birtir nú í fyrsta sinn fastskattavísitölu miðað við að virðisaukaskatti sé haldið föstum eins og hann var í febrúar 2007. Þessi vísitala hækkaði um 1,42% milli mánaða. Nánar er gerð grein fyrir útreikningi hennar og áhrifum af lækkun virðisaukaskatts í minnisblaði sem fylgir með.

Vísitala neysluverðs í mars 2007, sem er 267,1 stig, gildir til verð¬tryggingar í apríl 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.274 stig fyrir apríl 2007