Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,45% í maí í 258,9 stig og er verðbólga síðustu tólf mánaða því 7,6%, samkvæmt Hagstofu Íslands, sem birti tölurnar í morgun.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 239,6 stig, hækkaði um 1,48% frá því í apríl og er 5,4% á ársgrundvelli, segir Hagstofan. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,8% sem jafngildir 15,9% verðbólgu á ári (einnig 15,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Ferðir og flutningar hækkuðu um 5,2% (vísitöluáhrif 0,89%). Þar af hækkaði verð á bensíni og díselolíu um 6,5% (0,44%) og verð á nýjum bílum hækkaði um 5,3% (0,32%). Verð á tækjum og öðrum vörum til tómstundaiðkunar hækkaði um 3,2% (0,16%).

Verð á eigin húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,8% (0,31%), þar af voru áhrif af hækkun vaxta 0,06% en 0,25% af hækkun markaðsverðs. Verð á mjólk og mjólkurvörum lækkaði um 5,5% (-0,13%).

Vísitala neysluverðs í maí 2006, sem er 258,9 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.112 stig fyrir júní 2006.