Vísitala neysluverðs í september 2006 er 265,6 stig og hækkaði um 0,61% frá fyrra mánuði, segir í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 245,2 stig og hækkaði um 0,62% frá því í ágúst.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni hefur vísitalan hækkað um 7,6% síðastliðna tólf mánuði, en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% sem jafngildir 5,8% verðbólgu á ári (5,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Í síðasta mánuði mældist tólf mánaða verðbólga 8,6%.

Sumarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 11,7% (vísitöluáhrif 0,49%). Verð á dagvörum hækkaði um 1,6% (0,25%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,5% (0,09%), þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,01% og af hækkun vaxta 0,08%.

Verð á bensíni og olíu lækkaði um 3,3% (-0,23%) og flugfargjöld lækkuðu um 10,8% (-0,13%).

Vísitala neysluverðs í september 2006, sem er 265,6 stig, gildir til verðtryggingar í október 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.244 stig fyrir október 2006.