Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars  hækkaði um 0,55% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 346,0 stig og hækkaði hún um 1,05% frá febrúar. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 12,0% samkvæmt Hagstofu Íslands.

Í febrúar hækkaði neysluverðsvísitalan um 1,15% frá fyrra mánuði og tólf mánaða verðbólga mældist 7,3%.

Vetrarútsölum er víðast lokið samkvæmt Hagstofunni og hækkaði verð á fötum og skóm um 7,1% (vísitöluáhrif 0,41%). Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 4,1% (0,22%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,0% (-0,25%). Þar af voru -0,2% áhrif af lækkun markaðsverðs og 0,05% vegna lækkunar raunvaxta.