Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí er 377,6 stig og hækkaði um 0,94% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 358,8 stig og hækkaði um 0,73% frá apríl.

Gjöld fyrir heitt vatn og frárennsli hækkuðu um 10% (vísitöluáhrif 0,20%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 15,5% (0,17%). Kostnaður vegna viðhalds og viðgerða á húsnæði jókst um 3,7% (0,15%), þar af voru 0,12% áhrif vegna leiðréttingar á vinnulið byggingarvísitölu. Þá hækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 0,8% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,4% og vísitalan án húsnæðis um 3,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,7% sem jafngildir 11,2% verðbólgu á ári (10,3% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2011, sem er 377,6 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.456 stig fyrir júlí 2011.