Snjalltækni hefur mjög sótt í sig veðrið, en auk símanna eru raddstýrðir hátalarar á borð við Echo frá Amazon Google Home og HomePod frá Apple meðal almennustu tækja.

Sem sjá má að ofan eru notin misjöfn og mismikil, en í þeirri rannsókn gerðu svarendur grein fyrir því þeim kostum, sem þeir notuðu að staðaldri, og nefndu það sem þeim nýttist best.

Við blasir að þar liggja ónýtt tækifæri fyrir fjölmiðla. Í Bretlandi, þar sem könnunin var gerð, eiga 10% slíkar græjur, en tæpur helmingur þeirra fá fréttir um þær. Aðeins 1% telur það hins vegar koma að mestu gagni. Þar má gera betur.