Fyrsta viðskiptasendinefnd ársins á vegum Útflutningsráðs er til Suður-Afríku og verður farið bæði til Jóhannesarborgar og Höfðaborgar. Fimmtán fyrirtæki hafa þegar staðfest þátttöku í ferðinni, sem verður 24. febrúar til 3. mars 2007.

Skráningarfrestur fyrir fyrirtæki sem óska eftir því að skipulagðir verði fyrir þau viðskiptafundir í S-Afríku rennur út föstudaginn 5. janúar segir í frétt Útflutningsráðs.


Fyrirtæki sem ekki óska eftir skipulagningu viðskiptafunda, geta skráð þátttöku fram til 24. janúar.