Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði nokkuð í janúar á þessu ári eða um tæp 40% á milli mánaða sem er mesta hækkun á milli mánaða frá því í janúar í fyrra.

Þannig var 576 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í janúar, samanborið við 413 samninga í desember en 567 samningum var þinglýst á sama tíma árið áður samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands. Þannig nemur aukningin á fjölda samninga 1,6% á milli ára.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu náði hámarki í september sl. þegar tæplega 840 samningum var þinglýst.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár. Þar sést hvernig leigusamningum hefur fjölgað jafnt og þétt s.l. 2 ár þó þeim hafi farið nokkuð fækkandi með haustinu. Þá er aukinn fjölda samninga nú í janúar þvert á lækkunina frá því í september.

Ef horft er á landið í heild þá var 898 leigusamningum þinglýst í janúar sl. sem er 0,8% fækkun á milli ára en tæplega 52% fjöldun á milli mánaða. Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Norðurlandi, eða um 110 samningum. Þá var 85 samningum þinglýst á Suðurnesjum.

Leigusamningar á landsvísu náðu jafnframt hámarki í september sl. þegar um 1.520 samningum var þinglýst. Þar af var um 280 samningum þinglýst á Norðurlandi.