Hlutabréf í Asíu hækkuðu töluvert í dag og að sögn Bloomberg fréttaveitunnar má rekja miklar hækkanir dagsins til aðgerða stærstu seðlabanka heims sem kynntar voru í gær.

Það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins.

MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði um 4,6% í dag en sá hluti vísitölunnar sem snýr að fjármálageiranum hækkaði um 8%. Vísitalan hefur engu að síðu lækkað um 2,6% í þessari viku.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 3,8%, í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 9,3% og í Hong Hong hækkaði Hang Seng vísitalan um 8,1%.

Í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 4,8% og í Ástralíu hækkaði S&P 200 um 4,3%.