Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 1,94% í dag. Gengi bréfa Marels hækkaði um 3,55%, Eimskips um 2,62% og Haga um 2,46%. Eitt félag á Aðallista lækkaði í verði í dag, en gengi bréfa Össurs lækkaði um 0,50%. Velta á hlutabréfamarkaði nam alls 1.055,1 milljón króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,06% i dag. Verðtryggði hluti hennar hækkaði um 0,09% og sá óverðtryggði um 0,01%. Velta með þau bréf sem eru í vísitölunni nam alls 5,9 milljörðum króna.