Ríkiskaup og Opin Kerfi undirrita Rammasamning um tölvukaup sem hleypur á hundruðum milljóna króna að því er heimildir Viðskiptablaðsins herma. Snýst samkomulagið um að Opin kerfi verði forgangsbirgir fyrir kaup á tölvubúnaði fyrir allar ríkisstofnanir til næstu tveggja ára.

Markmiðið með gerð rammasamninga af þessu tagi er sagt vera að einfalda innkaupaferli opinberra aðila og tryggja ríkisstofnunum hagkvæmari verð við innkaup. Er jafnframt haldið fram að gera megi ráð fyrir því að ríkið spari ríflega eitt hundrað milljóna króna á samningstímanum.

Ríkiskaup stóð fyrir útboði sem lauk nýverið og er forgangsbirgir skilgreindur sem lægst bjóðandi og hefur forgang umfram aðra birgja í samingi til að selja vörur sem eru tilgreindar í vörukröfu útboðsins. Allar stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins á hverjum tíma eru aðilar að rammasamningum ríkisins og ber að eiga viðskipti við forgangsbirgja í samræmi við þá.

„Reynslan af samningi við skilgreinda forgangsbirgja eins og við Opin Kerfi hefur reynst okkur vel undanfarin ár, “ segir Halldór Ó. Sigurðsson , forstjóri Ríkiskaupa. „Þetta fyrirkomulag einfaldar innkaup ríkisstofnana, eykur hagkvæmina og tryggir hagstæðustu verð á notendabúnaði.“

Ragnheiður H. Harðardóttir , forstjóri Opinna Kerfa er að vonum ánægð með samninginn. „Við hlökkum til samstarfsins bæði við ríkisstofnanir og HP en samningur sem þessi tryggir ríkisstofnunum hagstæðasta verð á hverjum tíma á þeim búnaði sem skilgreindur er í útboðinu án þess að dregið sé úr gæðum,“ segir Ragnheiður.