Verslun Tölvulistans á Akranesi sem verið hefur til húsa í verslunarmiðstöðinni Þjóðbraut var lokað fyrirvaralaust í gær.

Fréttavefur Skessuhorns greinir frá þessu.

Þetta er önnur tölvuverslunin sem er lokað á skömmum tíma á Akranesi en BT lokaði sl. vor eftir taprekstur þeirrar einingar.

Í frétt Skessuhorns segir að í morgun hafi verið búið að tæma allar vörur úr hillum og fjarlægja merkingar úr húsnæði því sem Tölvulistinn hefur haft til leigu.

Auk verslunarinnar á Akranesi hefur Tölvulistinn rekið verslanir víða um land, m.a. á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi, Keflavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík.