Þúsundir viðskiptavina Delta Airlines komast ekki í loftið vegna bilana á tölvukerfi fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur ekki komist að niðurstöðu, en sendir þó út reglulegar tilkynningar í gegnum samskiptamiðilinn Twitter.

Tölvubilanirnar höfðu ekki áhrif á flugvélar sem voru nú þegar komnar í loftið. Aðrar flugvélar hafa þó þurft að standa kyrrar.