Bandaríski hugsuðurinn Tom Kelley, sem af mörgum er sagður einn merkasti nýsköpunarhugsuður okkar tíma og einn eigenda ráðgjafa- og hönnunarfyrirtækisins IDEO og höfundur metsölubókanna Creative Confidence og The Art of Innovation, heldur fyrirlestur Í Háskólabíó fimmtudaginn 28. ágúst.

Fram kemur í tilkynningu frá Hönnunarmiðstöð að á fyrirlestrinum muni Kelley fjalla um kjark til sköpunar út frá bókinni Creative Confidence, sem jafnframt kemur út á íslensku í þessari viku. Íslenska útgáfan nefnist Sköpunarkjarkur og kemur Kelley til með að árita hana að fyrirlestri loknum.