„Mér fannst það bara tímabært. Ég hef alltaf haft vit á því að hætta,“ segir Tómas Ottó Hansson, stjórnarformaður fjarskiptafyrirtækisins Nova.

Hann hefur hætt sem stjórnarformaður fyrirtækisins og sest nýr einstaklingur í stól stjórnarformanns í september.

Tómas hefur verið formaður stjórnar Nova síðastliðin sjö ár eða síðan árið 2007. Engar breytingar hafa verið gerðar á stjórn fyrirtækisins síðan þá.

Ekki liggur fyrir hver sest í sæti Tómasar í stjórn Nova, samkvæmt upplýsingum VB.is.