Tómas Ingason hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaþróunarsviðs WOW air. Tómas starfaði sem stjórnunarráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn á árunum 2011 til 2013. Áður leiddi Tómas tekjustýringu og verðlagningu hjá Icelandair.

Tómas hefur MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management í Boston en auk þess hefur hann lokið MS gráðu í verkfræði frá MIT með áherslu á flugrekstur og aðfangakeðjur. Tómas er með BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Tómas er kvæntur Rúnu Rut Ragnarsdóttur, markaðsstjóra hjá Expedia Inc., og eiga þau tvö börn.