Tómas Kristjánsson var kjörinn stjórnarformaður Regins á aðalfundi félagsins. Fyrrum stjórnarformaður Regins, Benedikt Kristjánsson var kjörinn varaformaður félagsins. Benedikt tilkynnti á aðalfundinum að hann sæktist ekki eftir að verða stjórnarformaður áfram.

Tómas er annar eigenda Siglu ehf og Klasa ehf. frá árinu 2007. Fyrir það var hann framkvæmdastjóri áhættustýringar, fjárstýringar og reikningshalds hjá Fjárfestingabanka atvinnulífsins, síðar Glitni banka. Tómas er með MBA gráðu frá háskólanum í Edinborg og Cand. Oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Eftirfarandi einstaklingar voru sjálfkjörin í aðalstjórn til næsta aðalfundar:

  • Albert Þór Jónsson
  • Benedikt K. Kristjánsson
  • Bryndís Hrafnkelsdóttir
  • Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir
  • Tómas Kristjánsson

Eftirtalin voru sjálfkjörin í varastjórn:

  • Finnur Reyr Stefánsson
  • Hjördís D. Vilhjálmsdóttir.