Tomas Viktor Young.
Tomas Viktor Young.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Tomas Viktor Young hefur verið ráðinn  framkvæmdarstjóri Hljómahallar, nýs tónlistar- og menningarhúss í Reykjanesbæ  úr hópi 27 umsækjenda.  Fyrirtækið Capacent vann forvinnuna við umsóknarferilinn í samstarfi við stjórn Hljómahallar og voru tíu manns teknir í viðtöl. Áhersla var lögð á reynslu af rekstri og markaðsmálum auk háskólamenntunar sem nýtast myndi í starfinu.

Fram kemur í tilkynningu að Tómas er fæddur og uppalinn í Keflavík og útskrifaðist sem stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 2002.  Hann lauk BSc í ferðamálafræðum 2008 og meistaraprófi í markaðsfræðum og alþjóða viðskiptum við viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 2010. Hann hóf nám í tónlistarskóla Reykjanesbæjar 9 ára gamall og  varð fljótt virkur í tónlistarlífi bæjarfélagsins. Hann og nokkrir félagar stofnuðu m.a. hljómsveitina Rými  sem gaf út geisladisk árið 2002 og einnig hélt hann utan um tónleika unga fólksins á Ljósanótt í nokkur ár. Tómas hefur unnið hjá Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar ÚTON s.l. fjögur ár og séð þar um fræðslustarf, fjármál, kynningarmál og ýmsa ráðgjöf. Hann skrifaði m.a. skýrslu um hagræn áhrif skapandi greina sem kom út árið 2011 og hefur vakið mikla athygli. Tómas hefur verið tengiliður við Hróarskelduhátíðina s.l. 14 ár og jafnframt unnið lengi í kringum Airwaves. Hann stóð jafnframt fyrir alþjóðlegu tónlistarhátíðinni ATP sem haldin var á Ásbrú í Reykjanesbæ á s.l. sumri  þar sem fjöldi innlendra og erlendra hljómsveita kom fram og skemmti á þriðja þúsund gesta. Tómas mun hefja störf í desember  en framkvæmdir við Hljómahöll eru nú á lokastigi.

Aðrir umsækjendur voru en einn dró umsókn sína tilbaka:

Brynja Aðalbergsdóttir, Davíð Eldur Baldursson, Eiður Arnarsson Einar Jóhannes Ingason, Eiríkur Árni Hermannsson, Elíza M Geirsdóttir Newman, Ester Sveinbjarnardóttir, Gísli Rúnar Gylfason, Guðmundur E Finnsson, Guðrún Eggertsdóttir, Gunnar Jóhannsson, Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, Gunnhildur Þórðardóttir, Gústav Jakob Daníelsson, Hanna Björg Konráðsdóttir, Ingi Rafn Sigurðsson, Íris Alma Vilbergsdóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir, Sigurbjörn Arnar Jónsson, Sigurður Keiser, Sigurður Sigurðsson, Sindri Þór Hilmarsson, Valdimar Hilmarsson, Vera Ósk Steinsen, Þorbjörn Ólafsson.