Öllum börnum og ungmennum á aldrinum 6-18 ára á Seltjarnarnesi hefur frá og með haustinu staðið til boða 25 þúsund króna tómstundastyrkur. Styrkurinn er ætlaður til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi. Styrkirnir eru greiddir eftir á og verða þeir fyrstu greiddir út í byrjun janúar nk.

Í tilkynningu vegna greiðslu styrkjanna segir að meginmarkmið tómstundastyrkjanna sé að öll börn og ungmenni á Seltjarnarnesi geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi, óháð efnahags- eða félagslegum aðstæðum.

Með tómstundastyrkjunum er einnig stuðlað að valfrelsi, jafnrétti og fjölbreytni á sviði íþrótta- og æskulýðsmála. Vonast er til að frístundakortin komi til með að auka þátttöku í skipulögðu íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi og verði hvati fyrir þau börn sem ekki hafa tekið þátt í slíku starfi, að nýta tómstundastyrkina sína til að taka þátt.