Tónleikar sem halda átti í Háskólabíói við Hagatorg til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna hefur verið frestað vegna veðurs. Skipuleggjendur tónleikanna telja það vera gáleysi að ana fólki úti í veðrið sem nú geisar á landinu.

Önnur dagsetning verður tilkynnt innan skamms. Uppselt er á tónleikana og munu allir miðar gilda á tónleikanna þegar ný dagsetning verður tilkynnt.