Arctic Adventures hf. tapaði tæpum 1,2 milljörðum króna á síðasta ári, samanborið við 115 milljóna króna hagnað árið 2019.

Þyngst vógu áhrif dóttur- og hlutdeildarfélaga á afkomuna sem voru neikvæð um 1,1 milljarð kr. en jákvæð um 125 milljónir kr. árið 2019.

Eignir námu 5,3 milljörðum í lok árs samanborið við 6,5 milljarða í árslok 2019. Eigið fé nam 5,2 milljörðum og var eiginfjárhlutfallið 99%. Samstæðureikningur hefur ekki verið samþykktur af ársreikningaskrá.